Það hlaut að koma að því.

Þar með er steininum kastað. Þeir sem eru fylgjandi virkjun eru farnir að nota sömu aðferðir og skríllin í Saving Iceland. 

Svona skemmdarfíkn er eingum til framdráttar. 


mbl.is Upplýsingaskilti andstæðinga Þjórsárvirkjana fjarlægð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta löglegt ?

Ættli allmanavarnir séu búinn að fara með þetta hugsanlega gos í umhvervismat.

LoL HA HA HA HA LoL


mbl.is Almannavarnir í viðbragðsstöðu vegna hugsanlegra eldsumbrota við Upptyppinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölgum Akureyringum:

Gaman að við Akureyringar erum orðnir 17000+Smile Skiptir eingu af hvaða ættum hann er.

Velkominn í hópinnGrin


mbl.is Akureyringar orðnir ríflega 17.000
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mig hlakkar til.

Ég vona að þessi bjórverksmiðja verð að veruleika.Joyful Það var frábært þegar KALDI kom á markaðinn en þá hafði ekki komið nýr íslenskur bjór í langan tíma.

 2B-Company gangi ykkur vel Smile


mbl.is Rís bjórverksmiðja í Vestmannaeyjum í vor?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhverju kom hann ekki ?

Ég var einmitt að vonast til að hann kæmi og fengi þrumu spark í RASSGATIÐ Grin 

Var að pússa bestu sparkskóna mínna og ættlaði mér að vera með þeim fyrstu til að heilsa honum niður á bryggju. En ég sett þá í poka og geymi þá þar til hann kemur næst Tounge


mbl.is Paul Watson hættur við fyrirhugaða Íslandsferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hugsuninn einginn ?

Ætli þessi skríl geri sér enga grein fyrir því hversu hættuleg það er að fara inn á svona svæði ? Ekki bara fyrir þau sjálf, heldur líka fyrir löggæsluaðila sem þurfa að klifra á eftir þeim. Það er þeirra val hvort þau drepi sig við svona háivitaskap, en að leggja aðra í hættu líka er ekki til að vekja samúð á málstað sínum.Angry

Það skal tekið fram að ég allgerlega á móti þessum skríl sem kalla sig náttúruverndasina. Ég kalla þau skríll og glæpamenn. Bandit


mbl.is Átta handteknir í Straumsvík og hlið opnuð á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hamingju dagar fyrir Ísland.

Mikið hefur verið rætt og ritað um þær vikjana framkvæmdir sem hefa verið í gangi við Kárahnjúk og er kominn tími til að ég tjá mig um þær við alþjóð en ekki bara í fárra vina hóp.

Þegar stórfyrirtækið Alcoa tók þá áhvörðun að byggja eina af sínum verksmiðju hérna upp á hjara veraldar varð ég glaður í mínnu litla hjarta. Þar sá ég loksins einhvern árangur af því starfi stjórnmálamanna( í öllum flokkum) og annara einstaklinga, sem með þrotlausu starfi sínu höfðu loksins fengið erlent fyrirtæki til að koma hingað og fjárfesta. Mörg fyrirtæki höfðu sent hingað fólk til skrafs og ráðagerða en manni fannst að þeir fulltrúar hefðu meira komið hingað í sumarfrí heldur en til að gera viðskipatilboð.

Er ég einn þeirra manna sem tók þátt í því að byggja álverið á Reyðarfirði og náði því að fylgjast með flestu því sem gerðist við þessi tvö verkefni, þ.e.a.s álverið og Kárahnjúkavirkjun. Mínn skoðun er sú að virkjuninn er eitt það glæsilegasta manvirki sem smíðað hefur verið á íslandi í mörg ár. Mikið af vekfræðingum og öðrum langskólagegnu fólki hefur lagt sig fram til að koma þessu verkefni sem best frá sér. Því hvort sem fólk er á móti álverum eða ekki þá verður það að viðurkennast, á einhverjum tímapunkti hefði þurft að fara í þessa framhvæmd. Ég veit ekki betur en að gagnaveita eins og Goggle eða Microsoft vilja setja upp hér þurfi svipað magn af raforku eins og Fjarðarál þarf fyrir álverið á Reyðarfirði.

Það sem ég vill segja við svartsýnispúkana er þetta: Landið sem fer undir Hálslón er afturkræft. Það hefur ekki verið flutt í burtu, það liggur bara undir vatni núna. Dýralíf finnur alltaf leiðir til að búa við breitar aðstæður, það hefur gert það við fjöldan allan af verkun mannana hér á íslandi (Laxárvirkjun, Blönduvirkjun, Sogsvirkjun o.s.frm). Ef við förum bara nógu hægt og varlega í svona framkvæmdir þá er ekkert því til fyrirstöðu að þær geti harmonerað við nátturuna. Ég veit ekki betur en að heiðargæsinn hafi verp við hálslón núna í vor þrátt fyrir að því hafi verið hadið fram að hún mundi ekki gera það. Vissulega fóru mörg hreiður undir vatn enda gæsir ólæsar og gerðu sér ekki grein fyrir því að vatnið væri að hækka.

Til þeira sem tala fyrir ósnortini nátturu íslands og hvað mikil verðmæti séu fólgin í henni, segi ég þetta: Náttura íslands er einskis virði ef eingin getur notið hennar. Til að nútíma ferðamaðurinn geti notið nátturu íslands þá verður að fara í aðgerðir sem á endanum verða til að ósnortin náttura á íslandi verður ekki lengur sem slík. Ég veit að það er sársaukafullt að heyra þetta en svona eru bara staðreindir málsins. Þær framkvæmdir sem hér um ræðir eru vegagerð þvers og kruss um hálendi, göngustígagerð við helstu staði, upplýsingamiðstöðvar, verslanir, salerni, gistiaðstöðu (fyrir tjöld,húsbíla,tjaldvagna og jafnvel gistiheimili eða hótel). Nútíma ferðamaðurinn er að flýta sér og hefur ekki tíma til að eyða 4 dögum í það að komast frá Seyðisfirði og upp í Öskju fótgangandi (miðað við að stoppað sé til að skoða fleiri staði á leiðini).

Þar sem ég geri ráð fyrir að ég þurfi að vera með frekari röksemdafærslur vegna skrifa minna um þetta mál þá vill ég segja þetta að lokum. Kárahnjúkavirkjun og Fjárðarál eru mestu framfara skref sem stígin hafa verið til að halda fleiru en höfuðborgini í byggð.  


mbl.is Hálslón orðið 40 ferkílómetrar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband